Færsluflokkur: Bloggar

Auglýsingafyrirspurn.

Þetta er auglýsingafyrirspurn til að vekja athygli á kosnaðinum við Davíðshrunið. Sigríður Ingibjörg ætti líka að spyrja um kostnað heimilanna vegna svikaverðtryggingarinnar og hvað hún kostar heimilin. Hún ætti líka að spyrja um niðurgreiðslur Seðlabankans til nýju bankanna og hvað vaxtagreiðslur SÍ til

þeirra kosta ríkissjóð og hvað þessar atvinnubótagreiðslur eru á hvern íbúa. Það lætur nærri að þær nemi um 260 000 þúsund krónur á þessu ári og álíka upphæð á síðasta ári. Eða sömu upphæð á hvert mannsbarn og kostnaðurinn við gjaldþrot SÍ.


mbl.is Kostar hvern íbúa 551.000 kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðgerðasöm ríkisstjórn

Það eru að sönnu fullt af aðgerðum hjá AGS parinu Steingrími og Jóhönnu, flestar þeirra eru þó bara í formi fréttatilkynninga. Aðrar ná aðeins til þeirra sem fæddir eru á hlaupársdag þau ár sem ekki er hlaupár. Allar miða þær að því að skila ekki þýfinu. Afleiðingarnar eru þverrandi greiðsluvilji, samdráttur í verslun og  lítil sem engin virðing fyrir þingi og ríkisstjórn.Þá er ekkert traust á bönkum eða bankastarfsemi og fleiri og fleiri vilja flýja fasistastjórnina og flytja til útlanda. Hér verður upplausn í haust og sennilega ofbeldisalda verði ekki eitthvað að gert. Það er mergurinn málsins. Almenningur vill ekki Siðblindulýðveldið Ísland eins og AGS parið hefur lagt svo mikla áherslu á að reisa.
mbl.is Óttast setningu bráðabirgðalaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankakerfið er óarðbært

Því miður er vandamálið ekki viljaleysi til að greiða heldur dýrt og ónýtt bankakerfi, kerfi sem er yfirmannað og stendur ekki undir sér nema það fái leyfi ( sem það hefur ) til að ræna  viðskipta''vinina''.

Bankakerfið þarf að skreppa umtalsvert saman og er sennilega ofmannað um 2.500 störf, þar á ofan bætist við bílífi stjórnenda. Vextir hér eru langt umfram það sem tíðkast í menningarlöndum. Eins og sakir standa á aðeins að ráða fólk í bankana sem hefur þunga framfærslu eða stríðir við takmarkaða starfsgetu. Það er út í hött að hafa þarna fullfrískt hámenntað fólk sem ætti að geta fundið sér vinnu í markaðsumhverfi. Vandinn er sá að hvorki fyrirtæki né heimili standa undir þeim mikla kostnaði sem fylgir því að vera dæmdur til að vera á Íslandi og þurfa að skipta við íslenskt bankakerfi. Það kann að ganga upp hjá fyrirtækjum í samantekinráð umhverfi en fyrirtæki hér  standast enga samkeppni við fyrirtæki í útlöndum út af vaxtakostnaðinum. Sá kostnaður fer ekki niður fyrr en umtalsverð fækkun verður á bankastarfsmönnum.

Annars er það um Creditinfo að segja að menn skyldu taka öllum upplýsingum þaðan með fyrirvara enda er fyrirtækið lús á bankakerfinu og tryggingafélögum og lifir aðallega á að skrá upplýsingar sem það kaupir af sýslumönnum og upplýsingum sem bankarnir segja þeim að skrá'' skv. beiðni'' . Vanskilaskrá Kreditinfo er svo notuð til að fólk geti ekki hreyft sig milli tryggingafélaga eða símafélaga '' af því það sé á vanskilaskrá'' . Með öðrum orðum þá fer matið fram á grundvelli upplýsinga frá Kreditinfo sem komið er til þeirra frá matsaðilanum. Semsagt voðalega 2007 legt.


mbl.is Lægri vextir fyrir skilvísi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamli fylkingargaurinn loksins kominn heim ?

Fylkingin deildi ekki sama áhuga á Kína og Maóistar forðum. Eftir langa vegferð og skólagöngu hefur nú Már Guðmundsson loksins áttað sig pólitískt og er  kominn '' heim'' í faðm Maóista. Nú verður sjálfsagt  stutt í að mjólkurbúðirnar fái aftur einkaleyfi á sölu á mjólk í Reykjavík. Þá munum við örugglega sjá endurhæfingarferðir til Kína.
mbl.is 66 milljarða samningur við Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuldarar áfram réttlausir?

Þessi skilaboð frá Jóhönnu eru öll í afneitunartón. Nú talar hún eins og hér hafi ekkert hrun orðið.

Sannleikurinn er sá að Seðlabankinn segir að fjórðungur heimila sé í djúpum skít. Það sem ríkisstjórnin hefur gert er að senda hinum s.k. bönkum tilmæli. Í barnaskap heldur Jóhanna að bankarnir ætli EKKI að innheimta allt af fólki sem þeir mögulega geta. Auðvitað er þeim skítsama um kúnnana eins og þeim var fyrir hrun. Þeir gera ekkert fyrir lántakendur nema að vera skikkaðir til þess með lögum.


mbl.is Hafa komið til móts við skuldavandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í réttum skóm

Þessi veit allt um hvað spilling snýst um og því hlýtur hann að þekkja handbragðið og hvernig hún gengur fyrir sig. Hinsvegar finnst mér hann ekki hafa efni á að setja út á bankapíuna Jóhönnu, hann er ekki í réttum skóm til þess.
mbl.is Vænd um spillingu og lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin lög ná yfir nómenklatúruna.

Tölvupóstssamskiptin sýna að um leikrit var að ræða. Nómenklatúran var að reyna að láta í það skína að nú yrðu allir settir undir sömu lögin í landinu og lögin um launalækkun myndu líka ná yfir hana.

Svo kemur á daginn að fasistastjórnin er söm við sig. Nú liggur fyrir að lögin áttu ekki að ná yfir Már Guðmundsson. Það sama gildir sennilega um alla í Nómenklatúrunni lögin um launalækkun áttu ekki að ná yfir hana.


mbl.is Heimatilbúinn vandi Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður 10% flokkur

Það að fólki sé í alvöru að láta sér detta í hug að gera Hönnubirnu að varaformanni sýnir að D listamenn vilja ólmir að flokkurinn verði 12% flokkur með sinn Steingrím Joð sem varaformann.
mbl.is Íhugar varaformannsframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur orðið frábært

Borgina hefur borið af leið og var orðin í fararbroddi í græðgisvæðingunni. Háir skattar, mikil yfirbygging en sáralítið fékkst fyrir skattana.Nýja stefnan var að samt átti öll þjónusta að vera á kostnaðarverði til borgaranna, eiginlega allt nema hönnubirnurnar 15.

Borgaryfirvöld hafa árum saman  staðið í illdeilum við íbúa Reykjavíkur, kennara, leikskólakennara,lítil fyrirtæki og nærumhverfið. Háir fasteignaskattar á atvinnurými hafa drepið alla nærþjónustu og þeir munu enn frekar drepa smáþjónustuna í hverfunum og færa hana á netið. Í miðborginni stendur enginn undir þeim nema vera bar, í kennitöluflakki eða borgarstofnun. Félagsþjónustan vísar öllu frá sér annað s.s. til almannatrygginga eða atvinnutryggingasjóðs. Orkuveitan fór í allra handa verkefni sem stjórnendur hennar réðu ekkert við með ófyrirséðum afleiðingum.

 Vonandi verður samstarfið á milli þessara aðila til þess að farið verður að hugsa um gæðin og hvernig þjónustan getur batnað, friður ríkt um skólastarfið, betri almenningssamgöngur og fl. Borgarkóngarnir verða hinsvegar að fjúka allir sem einn og  báknið verður að skera niður og gera það skilvirkt. Minnka það þannig að það sæmi gamla Reykjavíkurhreppi.


mbl.is Trúnaðarsamtöl á leynifundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannabirna næst ?

Hannabirna tapaði illa í Reykjavík þrátt fyrir bréfið dýra til kvenna í Reykjavík ( hver kostaði það ? ) en enn er spurningum ósvarað um eignarhald hennar og hverjir kostuðu hana á síðasta kjörtímabili.
mbl.is Sigrún Björk segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband