Færsluflokkur: Bloggar

Flokksdeild í VG eða Samfylkingu.

Lausnin fyrir atvinnuflugmenn er auðvitað að stofna flokksdeild í VG og Samfylkingunni. Þeir gætu bara flogið fyrir Íbúðalánasjóð eða Gosa í fjármálaráðuneytinu.Er viss um að Skudda og Gosi redda þeim um risnureikning og heimilisútgjöld á kostnað ríkissjóðs. Þá fengju þeir örugglega greidda reikninga fyrir '' ráðgjöf'' um Evrópumál.
mbl.is 59 flugmönnum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt önnur nálgun þarna.

Þeir sem keyrðu banka og kerfið í þrot á Íslandi eru enn að störfum í bönkunum hér og njóta mikils stuðnings Gosa í fjármálaráðuneytinu. Þessa sem kann þetta allt og getur þetta allt. Hér varð hrunið vegna getuleysis og spillingar og tengsla stjórnmálalífs, eftirlitsleysis og getuleysis allra stjórnenda í bönkunum hér. Hér voru stjórnendurnir verðlaunaðir fyrir verkið og fengu stuðning frá ríkisvaldinu og hafa verið á bísanum eða ráðgjafar hjá bísanum síðan þá. Eða þeir eru ráðgjafar hjá AGS, Efnahagsráðuneytinu eða Fjármálaráðuneytinu. Aðra sögu er að segja frá Færeyjum skv. þessarri frétt.
mbl.is Kolsvört skýrsla um gjaldþrot Eikar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákærur ekki ákveðnar í kosningum né í fótboltaleikjum.

Ísland er undirmáls og sérhagsmunaþjóðfélag og því ekki nema von að Pétur haldi að menn séu ákværðir á grundvelli skoðanakannana eða í almennum kosningum. Svo er hinsvegar ekki nú þó að vel geti verið að það hafi verið þannig þegar Björn Bjarna var dómsmálaráðherra.

Held að þessi könnun sýni aðallega að fólk er ósátt við að Geir einn skuli vera ákærður en að Ingibjörgu skuli hafa verið sleppt. Annað  sýnir skoðanakönnunin ekki.


mbl.is „Keisarinn er í engum fötum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær milljónir í aukaútgjöld í gær.

'' Velferðarráðherrann'' kvótastóri fór á kostnað  skattgreiðenda í frí á Hrafnseyri ásamt Gosa og Skruddu og öðrum ráðherrum sem vildu ferðast í einkaerindum. Þarna var líka '' hátíðarnefndin'' og allir á kostnað ríkissjóðs. Ráðherrann og vinir hans úr ráðuneyti Velferðar létu 'Velferðarráðuneytið örugglega borga allt og auðvitað dagpeninga að auki. Reikningur velferðarinnar vegna þessa hefur örugglega verið um tær milljónir fyrir þennan eina dag. Svona er íslensk velferð í dag.
mbl.is Milljarða framúrkeyrsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrir milliliðir sveitarstjóradólgarnir

Sveitarstjóradólgarnir komust yfir grunnskólana og reka þá núna. Við það að flytja þá frá ríkinu yfir til '' sveitarfélaganna'' les, sveitarstjóradólganna varð til dýr milliliður á ferð peninganna frá ríkinu til nemendanna. Áður fóru peningarnir beint frá ríkinu til skólanna en nú fara þeir frá ríkinu í ráðhúsin-þar sem góður hluti hverfur- og þaðan í skólana.
Enginn vildi þessa breytingu nema sveitarstjóradólgurinn og ástæða þess að Alþingi samþykkti lög um ''flutninginn'' var sú staðreynd að helmingur þingmanna
voru núverandi eða fyrrverandi sveitarstjóradólgur í leit að tilveru grundvelli.

Afleiðingin hefur verið sú að skólarnir fá nú aðallega minni pening til rekstrar en áður og skorið er niður við nemendur í þjónustu. Þrifin eru minni, skólastarfið er líka fábreytnara.
Samkvæmt þessari frétt þurfa nú ráðhúsin meiri pening og samtök ráðhússstarfsmanna ( samtök sveitarfélaga ) þurfa meiri pening. Um áramótin síðustu voru '' málefni fatlaðra'' flutt yfir til sveitarstjóradólganna og það sama verður upp á teningnum fyrir fatlaða.
Sveitarfélögin eru löngu liðinn tími og tilheyra hverfandi fortíð enda algjörlega óþarfur milliliður á 21. stu öldinni. Ísland er smáríki og hefur ekki efni á svona vitleysu því svo virkar fátt sem sveitarstjóradólgarnir koma nærri.


mbl.is Stefnir í töluverðan niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt á hausnum hér.

Kemur ekki á óvart að ferðaþjónustan er ekki arðbær og alveg í takt við annan rekstur í landinu. Það er aðeins fákeppnis og samantekin ráð reksturinn í landinu sem ber sig. Rekstur eins og Haga, símafyrirtækja, tryggingarfélaga etc.

 


mbl.is Engin arðsemi i ferðaþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna varð yfirflugfreyja.

Þegar myndin er tekin þá er Jóhanna flugfreyja í 189 farþega Rolls-Royce vélum Loftleiða en hennar tími kom svo seinna sem yfirflugfreyja í ég um mig frá mér sérhagsmunaveldinu íslenska.

Annars er þetta allt dálítið íslenskt og sannar að við höfum ekkert lært lengi en Icelandair Hotels kynna grænt hótel með '' grænar'' áherslur og viti menn;  það er staðsett þar sem mengun er mest í allri Reykjavík, á sjálfum Reykjavíkurflugvelli. Hvergi er CO2 mengun meiri á landinu en þar nema ef vera skyldi á Keflavíkurflugvelli.

 


mbl.is Jóhanna á gamalli auglýsingamynd?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nómenklatúran lætur ekki að sér hæða.

Árni Páll er í Nómenklatúrunni og á þess vegna guðlegan rétt á að ríkið sjái fyrir honum. Hann er á bísanum og hann var hressilega á bísanum á árunum 2004 til 2008. Ef hann hefði fengið þennan ríkisstyrk sem íslenskur ríkisborgari í Danmörku þá hefði honum verið vísað úr landi. Hér þykir þetta hinsvegar fínt og gerir Árna Pál að fínikalli ( þetta gildir auðvitað líka um Guðlaug Þór eða kannski Guðlegan Þór ? ).

Fínikallar eins og Árni Þór hafa í raun keyrt þetta þjóðfélag í þrot bæði efnahagslega og siðferðilega. Gangandi um þorpsgötuna með hendur í vösum, borandi í nefið að veita ríkinu '' ráðgjöf'' og fyrir henni eru greiðslur skammlaust sóttar í ríkissjóð. Það eru heilu breiðurnar af svona fólki í þjóðfélaginu en þetta ráðslag hlýtur að þýða að venjulegt vinnandi fólk neitar að greiða skatta, flytur úr landi eða hættir að vinna líka og leggst á bísann. Það er ekki nema von að Árna gefist enginn tími til að vinna að almannahagsmunum því svo upptekinn er hann af að skrifa reikninga fyrir ríkisféhirði að greiða.


mbl.is „Með ítarlegar tímaskýrslur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnur hjá LÍÚ.

Það vantar alveg í fréttina kjarna málsins. Hann er sá að LÍÚ greiðir Helga launin og '' kostar'' stöðuna og sjálfsagt hafa þeir gert hann líka að '' sérfræðingi í fiskveiðistjórnarkerfum við Lagastofnun Háskóla Íslands. Getur Háskóli virkilega lagst svona lágt.
mbl.is Gerir alvarlega athugasemdir við litla frumvarpið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mandat, um mig frá Mandat til Mandat.

Greinilegt er að aðeins Mandat fjölskyldan getur metið og selt þrotabú og aðeins Mandat fjölskyldan  á guðlegan rétt á að fá kött af dílnum og aðeins Mandat fjölskyldan gat eignast slitastjórnina enda með góð tengsl við þá meirihlutaeigendur í VG þá Steingrím Joð og Svavar '' Ég nennti þessu ekki lengur'' Gestsson. Hinsvegar tekur eigandinn skýrt fram að sendillinn hafi ráðið aðkomu Mandat fjölskyldunnar að þessum díl '' enda fáir betur til þess fallnir'' að fá kommisjónina heldur en Mandat fjölskyldan, já eiginlega bara engin önnur klíkufjölskylda í landinu. Hvað mun svo flokkssjóður VG fá ? ja, það kemur í ljós seinna.
mbl.is Fyrirtæki eiginmanns formanns slitastjórnar sér um sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband