Bara einn starfsmaður í Seðlabankanum.

Sibert þessi er í saumaklúbb með Ingibjörgu og Jóhönnu og endaði í peningastefnunefnd Seðlabankans vegna þessa vinskapar. Nú skrifar hún grein  sem gengur út að Seðlabankinn hafi aðeins haft einn starfsmann allt árið í fyrra. Greinina skrifar hún sennilega til að þóknast höndinni sem

fæðir hana: Jóhönnu Sig. 

 


mbl.is Segir Davíð hafa skort sérfræðiþekkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þú kannski mannst að Anne Sibert skrifað ásamt William Buiter skýrsluna sem varaði við hruninu. Og var stungið undir stól.  Það er óþarfi að gera lítið úr henni. Hún er virtur vísindamaður og þessi grein hennar fjallar ekki um Davíð heldur er hann tekinn sem dæmi. Hún er að velta fyrir sér möguleikum smáríkja með hliðsjón af fullveldi Grænlands

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.8.2009 kl. 15:40

2 Smámynd: Agla

Ég sem hélt að karlremban væri komin úr tísku! Magnús er í öllu falli ekki blindaður af fordómum.

Anne Sibert er Professor og Head of the School og Economics, Mathematics and Statistics í Birbeck College í London. Það getur verið að hún sé í prjónaklúbb með Jóhönnu og Ingibjörgu  en jafnvel þó svo væri ...............

Agla, 9.8.2009 kl. 15:57

3 Smámynd: Einar Guðjónsson

Sé bara ekki að þessi frásögn um Davíð eigi eitthvað sérstakt erindi.Því hún hefði getað nefnt  alla þátttakendur í hruninu rétt eins og hann.Hún ýjar að því að hægt hefði verið að bjarga Glitni en ekki verið gert vegna tengsla DÓ við þá sem eignuðust Landsbankann. Landsbankanum var ekki bjargað.Lítur út fyrir að hún hafi ekki fengið réttar upplýsingar.Þá eru staðleysur í greininni bæði um að Jóhanna hafi ráðið fransk-norskan saksóknara ´´to investigate´´ og norðmann sem Seðlabankastjóra af því hæfileikafólk fannst ekki heima.Hvorugt er rétt. Dómsmálaráðherra lét undan þrýstingi og réði ráðgjafa ( JolY) og hinn norska Svein réð hún tímabundið af því Már gat ekki byrjað strax.Finnst hún gera lítið úr sér sjálf með þessari grein.

Einar Guðjónsson, 9.8.2009 kl. 16:05

4 Smámynd: Einar Guðjónsson

Raunar má segja að hægt sé að snúa þessu við.Ef Sven hefði verið í bankanum allt

árið 2008 þá hefði ekkert gerst. Auðvitað er það spillingin hér sem tafði fyrir og kostaði hrunið og milljarðana. 

Einar Guðjónsson, 9.8.2009 kl. 16:11

5 identicon

Ekki er staðan eitthvað betri í Seðlabankanum og peningamálum þjóðarinnar núna þótt þessi vel menntaða og lærða kona í hagfræði hafi tekið þar sæti í stjórn.

Guðrún (IP-tala skráð) 9.8.2009 kl. 16:19

6 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég hét að þessi Anne Sibert hefði eitthvað annað að segja en bull. Ég hafði rangt fyrir mér, eins og ég fjalla um hér: http://altice.blog.is/blog/altice/entry/927993/

Loftur Altice Þorsteinsson, 9.8.2009 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 876

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband