Landskjörstjórn fær falleinkunn.

Ég er og var fylgjandi því að efna til kosninga um stjórnlagaþing. Á kjörfundi varð manni hinsvegar ljóst að framkvæmd þeirra var fyrir neðan allar hellur og sýndi algjört dómgreindarleysi Landskjörstjórnar. Hinsvegar vonaði ég að enginn myndi kæra en var viss um að kosningarnar væru ekki í samræmi við lög.

Landskjörstjórn er skipuð pólitískt af Alþingi eftir pólitískum línum og  raðast aðallega í hana lögmenn sem upplifa sjálfa sig sem '' fínimenn''  og gjarnan verið í bómullarhjúp eigenda flokkana og oft hafa meðlimir hennar verið stórir hluthafar í fjórflokknum. Átt greiðan aðgang að '' vegtyllum'' fjórflokksins. Allir vita nú að þessar vegtyllur eru keyptar í skiptidílum fjórflokksins og hafa ekkert með hæfileika að gera. 

Kemur líka í ljós að framkvæmd kosninganna var ónýt og sýnir að hún er ekki starfi sínu vaxin. Landskjörstjórn veit ekkert um hvað lýðræðislegar kosningar snúast um, hefur bara ekki hugmynd um það.

Landskjörstjórn á auðvitað að segja af sér strax og jafnframt á að íhuga málssókn gegn nefndarmönnum sem nú hafa sólundað hálfum milljarði úr ríkissjóði og eyðilagt fyrir okkur kosningarnar.


mbl.is Stjórnlagaþingskosning ógild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Aðalvandamálið sem stjórnlagaþing hefði þurft að afgreiða, og mun fyrr eða síðar vera afgreitt með einhverju hætti , er að það þarf tæra og algjöra þrískiptingu ríkisvaldsins eins og heimsins mestu lýðræðisríki hafa. 

Í Bandaríkjunum eða Frakklandi væri Jóhanna Sigurðardóttir í fangelsi ásamt öllum ábyrgum ráðherrum og þingmönnum fyrir Lýsingarmálið, en þar greip þingið fyrir hendurnar á Hæstarétt. 

Í Lýsingarmálinu stóð ríkisstjórnin með auðvaldinu á kostnað hundruða heimila sem annars hefðu ekki orðið gjaldþrota og sýndi þar sitt rétta andlit. 

Þessi ríkisstjórn hafði aldrei áhuga á Þrískiptingu ríkisvald eða nokkrum öðrum góðum uppástungum stjórnlagaþing, hvað sem hún þykist nú, þá hefði hún ekki hrækt svona í andlitið á Hæstarétti og fólkinu í landinu um leið. Þetta er aðeins eitt af mörgum dæmum um hvernig ríkisstjórnin hefur brotið á rétti fólksins í trossi við dóma Hæstaréttar.

Hér lyktar allt af samsæri og ólöglegu ráðabruggi. Stjórnlagaþing átti aðeins að vera "ráðgefandi", og góðum hugmyndum eins og þrískiptingu valdsins átti að henda út, en í til dæmis Bandaríkjunum færi Obama sjálfur í steininn ef hann sýndi Hæstaréttardómara viðlíka fyrirlitningu og Jóhanna gerði með sínum einræðistilburðum í Lýsingarmálinu sem gerði hundruði heimila gjaldþrota út af verndarhendi þeirri sem ríkisstjórnin hélt yfir auðvaldinu.....

Það er því augljóst að góðar ábendingar þessa þings hefði svona fólk hunsað með öllu, og aðeins misnotað það til að gera ólöglega innlimun inn í ESB auðveldari, í trássi við vilja og hagsmuni fólksins.

Þetta þing verður því geymt fyrir betri tíma og fyrir hæfara fólk með stærri og hærri og réttari hugsjónir, framtíðar leiðtoga Norðurbandalagsins, sem best væri hefði sína eigin sameiginlegu stjórnarskrá að einhverju leyti...

Hugsum stærra (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 03:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 876

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband