Bankakerfið er óarðbært

Því miður er vandamálið ekki viljaleysi til að greiða heldur dýrt og ónýtt bankakerfi, kerfi sem er yfirmannað og stendur ekki undir sér nema það fái leyfi ( sem það hefur ) til að ræna  viðskipta''vinina''.

Bankakerfið þarf að skreppa umtalsvert saman og er sennilega ofmannað um 2.500 störf, þar á ofan bætist við bílífi stjórnenda. Vextir hér eru langt umfram það sem tíðkast í menningarlöndum. Eins og sakir standa á aðeins að ráða fólk í bankana sem hefur þunga framfærslu eða stríðir við takmarkaða starfsgetu. Það er út í hött að hafa þarna fullfrískt hámenntað fólk sem ætti að geta fundið sér vinnu í markaðsumhverfi. Vandinn er sá að hvorki fyrirtæki né heimili standa undir þeim mikla kostnaði sem fylgir því að vera dæmdur til að vera á Íslandi og þurfa að skipta við íslenskt bankakerfi. Það kann að ganga upp hjá fyrirtækjum í samantekinráð umhverfi en fyrirtæki hér  standast enga samkeppni við fyrirtæki í útlöndum út af vaxtakostnaðinum. Sá kostnaður fer ekki niður fyrr en umtalsverð fækkun verður á bankastarfsmönnum.

Annars er það um Creditinfo að segja að menn skyldu taka öllum upplýsingum þaðan með fyrirvara enda er fyrirtækið lús á bankakerfinu og tryggingafélögum og lifir aðallega á að skrá upplýsingar sem það kaupir af sýslumönnum og upplýsingum sem bankarnir segja þeim að skrá'' skv. beiðni'' . Vanskilaskrá Kreditinfo er svo notuð til að fólk geti ekki hreyft sig milli tryggingafélaga eða símafélaga '' af því það sé á vanskilaskrá'' . Með öðrum orðum þá fer matið fram á grundvelli upplýsinga frá Kreditinfo sem komið er til þeirra frá matsaðilanum. Semsagt voðalega 2007 legt.


mbl.is Lægri vextir fyrir skilvísi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Guðjónsson

Höfundur

Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
Framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki.Ekki aðili að flórflokkasambandinu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 876

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband